Boðsmót Þjóðskjalasafnsins var haldið 23.janúar síðastliðin. Mótið er haldið í tilefni af því að Þjóðskjalasafnið hefur undanfarin misseri unnið að varðveislu gagna Skáksambandsins. Var því ýmislegt úr sögu Skáksambandsins til sýnis meðfram mótinu. Keppendur á mótinu voru úr ýmsum áttum en auk starfsmanna og ýmsum fastagestum Þjóðskjalasafnsins var Íslandsmeisturum ungmenna boðið að taka þátt.

Keppendur voru

Gauti Páll Jónsson
Eiríkur K. Björnsson
Ögmundur Kristinsson
Gunnar K. Gunnarsson
Mikael Bjarki Heiðarsson
Þór Valtýsson
Örvar Hólm Brynjarsson
Unnar Ingvarsson
Pétur Úlfar Ernisson
Haukur Víðis Leósson
Sigurður Freyr Jónatansson
Emilía Embla B. Berglindardóttir
Katrín Ósk Tómasdóttir
Róbert Heiðar Skúlason
Emilía Sigurðardóttir
Emilía Klara Tómasdóttir

Mótshaldið var á léttu nótunum. Tefldar voru fimm umferðir með tímamörkunum 5+3 og voru skákirnar óreiknaðar.

Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður lék fyrsta leiknum fyrir Gauta Pál Jónsson.

Gauti mætti í sínu fínasta pússi og skilaði það sér inná skákborðið einnig þar sem hann fór í gegnum hvern keppinautinn á fætur öðrum og sigraði mótið með 4,5 vinninga af 5 mögulegum.

Stílhreinn klæðaburður á Gauta Pál
Unnar Ingvarsson, Haukur Kristófer Bragason og Ólafur Arnar Sveinsson ræða málin milli skáka

Örvar Hólm Brynjarsson sýndi frábæra taflmennsku og tryggði sér annað sætið með því að leggja Íslandsmeistarann frá árinu 1966 Gunnar K. Gunnarsson að velli eftir spennandi endatafl í lokaumferðinni eins og má sjá hér í videó-inu að neðan.

Í 3.sæti varð Ögmundur Kristinsson en allir fengu þeir veglegar bækur í verðlaun þar á meðal Sögu Skáksambandsins.

 

Frábært framtak og hér má svo sjá myndband frá mótinu!

Ljósmyndir frá mótinu má sjá hér:

_D0A2886

- Auglýsing -