Sextán manna úrslitum Síminn Invitational í netskák lýkur á í kvöld. Í fyrri viðureign kvöldsins sem hefst kl. 19 mætast FIDE-meistararnir Jón Kristinn Þorgeirsson og Sigurður Daði Sigfússon. Í þeirri síðari mætast stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson og Dagur Ragnarsson.

Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.

Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ

Skákskýringar í kvöld verða í umsjón Ingvars Þór Jóhannessonar og Björns Ívar Karlssonar. 

Viðureignirnar eru á Lengjunni.

Harpa Ingólfsdóttir Gígja er efst í Draumaliðsdeildinni. Staðan í Draumaliðsdeildinni.

Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Verði jafnt verður teflt til þrautar. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

Verðlaun í aðalkeppninni

  1. 200.000 kr
  2. 100.000 kr.
  3.   25.000 kr
  4.   25.000 kr.
- Auglýsing -