Átta manna úrslit Síminn Invitational í netskák lýkur annað kvöld kl. 19. Í fyrri viðureign á morgun mætast FIDE-meistararnir Ingvar Þór Jóhannesson og Bárður Örn Birkisson og í þeirri síðari tefla saman landsliðsmennirnir Vignir Vatnar Stefánsson og Dagur Ragnarsson. Sigurvegarnir tefla saman í undanúrslitum.
Skákskýringar á morgun verða í höndum Björns Ívars og Tinnu Kristínar.
Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.
Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ
Viðureignirnar eru á Lengjunni.
Halldór Ingi Kárason, Unnar Ingvarsson, Brynjar Bjarkason, Aron d og Halldór Brynjar Halldórsson eru efstir í Draumaliðsdeildinni. Staðan í Draumaliðsdeildinni.
Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Verði jafnt verður teflt til þrautar. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.
Verðlaun í aðalkeppninni
- 200.000 kr
- 100.000 kr.
- 25.000 kr
- 25.000 kr.














