Mánaðarleg hraðskákmót Skákfélags Mosfellsbæjar halda áfram núna á laugardaginn 9. maí 2026 að Þverholti 2, fiskabúrinu innan við bókasafnið í Mosfellsbæ frá kl 12:30-14:30.
Um er að ræða 7 umferða hraðskákmót reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Tímamörkin eru 4 mínútur plús 3 sekúndur bætast við á klukkuna fyrir hvern leik.
Kaffi og kræsingar verða á staðnum og hvergi betra að byrja helgina. Þetta er síðasta mótið fyrir sumarfrí og í þetta sinn verður Sigurleiðir með 1. e4 – e5 nýútgefin bók Jóns Viktors Gunnarssonar í verðlaun fyrir fyrsta sæti.
Öll hjartanlega velkomin og hlökkum til að sjá ykkur sem flest. Hámarksfjöldi keppenda er 32 manns.
Skráning í mótið 9. maí í gegnum skakmos.is eða:
- Auglýsing -


















