Sjötta umferð á TePe Sigeman-mótinu fór fram í Malmö í dag. Magnus Carlsen og Arjun Erigaisi unnu báðir góða sigra en Indverjinn Erigaisi er nú einn efstur á mótinu með 4,5 vinninga þegar aðeins ein umferð er eftir.
Carlsen lagði Andy Woodward að velli með svörtu mönnunum. Norðmaðurinn beitti kóngsindverskri vörn og var greinilega tilbúinn að leggja allt undir. Carlsen var betri í flækjunum og náði í sigur sem heldur vonum hans á floti. Carlsen hefur hægt og rólega unnið sig aftur inn í toppbaráttuna eftir tapið gegn van Foreest í 4. umferð.
Erigaisi vann annan sigur sinn í röð þegar hann lagði Zhu Jiner að velli. Indverjinn hefur verið afar sannfærandi á mótinu og virðist alltaf finna leiðir til að skapa flækjur og pressu í stöðunum. Með sigrinum náði hann hálfs vinnings forskoti á keppinautana.
Toppslagur umferðarinnar milli Erdogmus og Abdusattorov endaði með jafntefli. Tyrkneski táningurinn heldur þar með áfram frábæru móti og er nú í 2.-3. sæti ásamt Carlsen með 4 vinninga.
Jafntefli varð einnig í skák Jorden van Foreest og Nils Grandelius. Grandelius með tvö jafntefli í röð eftir erfiða byrjun á mótinu.
Staðan eftir 6 umferðir:
- GM Arjun Erigaisi – 4,5 vinningar
- GM Magnus Carlsen – 4 vinningar
- GM Yağız Kaan Erdogmus – 4 vinningar
- GM Nodirbek Abdusattorov – 3,5 vinningar
- GM Jorden van Foreest – 3 vinningar
- GM Andy Woodward – 2,5 vinningar
- GM Zhu Jiner – 1,5 vinningar
- GM Nils Grandelius – 1 vinningur
Lokaumferðin verður tefld á morgun og þar verður sannkallaður kynslóðaslagur þegar „geitin“, Magnus Carlsen, mætir 14 ára stórstirninu Yağız Kaan Erdogmus. Erdogmus hefur farið á kostum á mótinu og gæti með sigri tryggt sér einn stærsta árangur ferilsins hingað til. Arjun Erigaisi heldur þó enn öllum spilum á hendi fyrir lokaumferðina, hefur örlögin í eigin hendi og hvítt gegn Woodward.
Um mótið:
Tepe Sigeman er sterkt mót sem haldið er í Svíþjóð og hefur vakið athygli fyrir skemmtilegan keppendalista í gegnum tíðina. Sérstaka athygli vakti þátttaka Magnus Carlsen í ár. Óstaðfestar heimildir herma að Carlsen hafi tekið þátt þar sem golfvellir í nánd við mótsstað eru með besta móti!
Umhugsunartíminn er 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leikina, síðan 30 mínútur til loka skákar, með 30 sekúndna viðbót frá fyrsta leik, og samkvæmt svokölluðum Malmö-reglum eru jafnteflistilboð ekki leyfð fyrir 40. leik.
Keppendahópurinn er glæsilegur: Magnus Carlsen, Nodirbek Abdusattorov, Arjun Erigaisi, Jorden van Foreest, Yağız Kaan Erdoğmuş, Nils Grandelius, Andy Woodward og Jiner Zhu. Þarna mætast reyndir stórmeistarar og nokkrir af áhugaverðustu ungu skákmönnum heims, flestir frumlegir og hvassir skákmenn.


















