Skákdeild Hauka heldur mánaðarleg skákmót.

Fimmta mótið verður haldið fimmtudaginn 14. maí – uppstigningardag, að Ásvöllum 1, handboltasalnum.

Úrslit janúarmóts  Ágúst Sindri Karlsson vann

Úrslit febrúarmóts Gauti Páll Jónsson vann

Úrslit marsmóts Þorvarður Fannar Ólafsson vann

Úrslit aprílmóts Gauti Páll Jónsson vann

Myndir frá mótunum

Mótið hefst klukkan 19:45 og stendur til 21:45. Skráning fer fram á staðnum og byrjað er að taka við skráningum klukkan 19:30. Skráningarformi verður líka bætt við eftir helgi til að flýta fyrir skráningu.

Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 4+3. Fjórar mínútur á mann að viðbættum þremur sekúndum á hvern leik. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.

Mótið er öllum opið. Við hvetjum Hafnfirðinga sérstaklega til þátttöku!

Þátttökugjöld:

Félagsmenn Hauka 18 ára og eldri: 500kr.

Félagsmenn Hauka 17 ára og yngri: Ókeypis

Utanfélagsmenn 18 ára og eldri: 1000kr.

Utanfélagsmenn 17 ára og yngri: 500kr.

Reikningsnúmer: 0544 05 412544

Kennitala: 631101 2830

- Auglýsing -