Barnaskákmót KR verður haldið sunnudaginn 7. júní næstkomandi og hefst það klukkan 13:00 í Samfélagshúsinu á Aflagranda 40. Tímamörkin verða 8 mínútur á hvorn keppenda að viðbættum 3 sekúndum fyrir hvern leik (8 +3). Tefldar verða 7  umferðir.

Keppt verður í tveimur flokkum. Annars vegar 1.-3. bekkur og hins vegar 4.-9. bekkur.

Mótin verða reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga.

Efstu krakkarnir í hvorum flokki fá verðlaun.

Veitingar í boði fyrir skráða þátttakendur og aðstandendur frá 12:20.

Engin þátttökugjöld eru en þeir sem vilja styrkja mótaröðina er bent á að leggja inn á

reikning skákdeildar KR: 0137-26-004400, kt. 441199-2019.

Skráning á mótið

- Auglýsing -