Sjötta umferð var tefld í dag á EM kvenna sem fram fer í Batumi í Georgíu. Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova tapaði í hörku skák gegn ungverskri stelpu með mongólskt nafn, Davaademberel Nomin-Erdene (2328).

Lenka hafði svart og upp kom Taimanov afbrigði sikileyjarvarnar. Staðan varð mjög óræð og fórnaði Lenka manni á a3 gegn lönghrókuðum kóngi og virtist vera að ná þráskák en sú ungverska fórnaði manni til baka og hélt taflinu gangandi. Eftir miklar flækjur kom upp endatafl þar sem því miður var skiptamunsvinningur hvíts mikilvægastur í stöðunni. Tap niðurstaðan að lokum í þessari skák.

Sjöunda umferð fer fram á mánudaginn og þar mætir Lenka Sofio Gvetadze heimastelpu með 2311 elóstig.

Alls taka 165 skákkonur þátt á mótinu og þeirra stigahæst er Stavroula Tsolakidou frá Grikklandi. Lenka er númer 102 í styrkleikaröðun á mótinu. Teflt er á hverjum degi, utan eins frídags.

- Auglýsing -