Áskorendaflokkur Skákþings Íslands hófst í dag með tvöfaldri umferð. Mikið var um óvænt úrslit og ljóst að baráttan um sæti í landsliðsflokki að ári verður hörð!
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, forseti SÍ, setti mótið og lék fyrsta leikinn í skák Sigurbjörns Hermannssonar og Sigurbjörns Björnssonar, stigahæsta manni mótsins.

Hér komu strax óvænt úrslit! Sigurbjörn yngri með hvítt náði að leggja Sigurbjörn eldri að velli. Hvítur missti reyndar af ansi sterkri stungu snemma tafls.
Hér hefði 12.e5! verið ansi erfiður þar sem hvítur vinnur lið til baka eftir 12…dxe5 13.Re6! og í kjölfarið falla peð á g6 og e6 og hvítur vinnur svo lið til baka.
Hvítur vann skiptamun eftir ónákvæma leiki hjá svörtu og náði Sigurbjörn Hermannsson að klára dæmið. Svartur fékk smá séns í lokin en á endanum taldi skiptamunurinn.
Fyrsta umferðin var full af óvæntum úrslit, Þorsteinn Jakob hélt jöfnum hlut gegn Bárði Erni, Pétur Úlfar Ernisson vann mjög óvænt gegn Markúsi Orra Óskarssyni auk þess sem Stefán Orri Davíðsson og Guðmundur Peng Sveinsson náðu í óvænt jafntefli í sínum skákum.
Óvæntu úrslitin héldu áfram í 2. umferð, seinni umferð dagsins. Birkir Hallmundarson tók jafntefli gegn Birni Hólm og Haukur Víðis Leósson lagði landsliðskonuna Guðrúnu Fanney Briem sem missti af jafntefliskröfu á ögurstundu.
Sigurbjörn Hermannsson náði ekki að fylgja eftir sterkri fyrstu umferð og missti steindautt hróksendatafl niður í tap gegn Gauta Páli.
Gauti Páll er einn af fjórum skákmönnum með fullt hús, 2 vinninga. Auk hans eru Haukur Víðis, Óskar Víkingur Davíðsson og Markús Orri Jóhannsson með fullkomið skor. Ótrúlegt en satt þá hafa sex stigahæstu skákmenn mótsins allir misst niður allavega hálfan vinning!
Þriðja umferð fer fram á morgun og þá mætast:
Markús Orri – Gauti Páll
Haukur Víðis – Óskar Víkingur
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar (15 mínútna seinkun)
Alls taka 34 skákmenn í mótinu og eru 6 skákir sýndar beint í hverri umferð. Stighæstir keppenda eru FIDE-meistararnir Sigurbjörn Björnsson og Bárður Örn Birkisson.

















