Sjötta umferð var tefld í gær á HM ungmenna en mótið fer fram á Montesilvano á Ítalíu. Úrslitin voru ekki góð en bæði Guðrún Fanney Briem (2026) í stúlknaflokki U16 og Birkir Hallmundarson (2007) í opna U14 töpuðu sínum skákum. Í dag er frídagur þar sem íslensku keppendurnir safna vonandi orku og vopnum fyrir góðan endasprett.

Guðrún hafði svart og mætti annarri slóvenskri stelpu, Sofia Timagina (1957) í sjöttu umferðinni. Upp kom Caro-kann vörn. Miðtaflið var í jafnvægi en Guðrún lék nokkrum ónákvæmum leikjum t.d. var 17…h6 mikilvægur til að halda stöðunni í skefjum. Sú slóvenska náði tökum á stöðunni og hættulegri kóngssókn í kjölfarið og tefldi einfaldlega taflið bara vel og vann sanngjarnan sigur.
Guðrún hefur 3 vinninga af 6 og í sjöundu umferðinni hefur hún hvítt gegn B P Chanthuli Thanishka DE SILVA (1851) frá Sri Lanka.
Guðrún er númer 28 í stigaröð af 106 keppendum.

Birkir hafði hvítt og mætti Lucas Rusu (2191) frá Rúmeníu. Upp kom Taimanov-sikileyjarvörn og Birkir virtist fara snemma útaf sporinu. Svartur fékk ægilega stöðu, vann biskupaparið og svo lið í kjölfarið. Birkir komst aldrei inn í þessa skák.
Birkir hefur 3 vinninga af 6 mögulegum. Næst mætir Birkir strák frá Malasíu með rándýrt nafn, Kai Xue Edric Ch Ng (1655). Birkir hefur svart.
Birkir er númer 68 í styrkleikaröðinni af 151 keppanda í U14 flokknum.
Svipmyndir úr skáksal:
Að lokinni sjöttu umferð verður frídagur á mótinu!
- Heimasíða mótsins
- Instagram síða World Youth
- Skákir á lichess: G16 | U14
- Chess-results: G16 | U14















