Green Diamond Invitational 2026 fór fram í gær og leitun er að glæsilegra, sterkara og skemmtilegra hraðskákmóti sem haldið hefur verið hérlendis. Alls voru 6 stórmeistarar mættir til leiks, auk Íslandsmeistarans sem var annar alþjóðlegri meistara og tveggja FIDE-meistara. Gæði í hverju horni, engin auðveld skák! Að lokinni skemmtilegri baráttu stóð stigahæsti skákmaður Íslands, Vignir Vatnar Stefánsson, uppi sem sigurvegari.

Mótið hófst með níu umferða móti þar sem allir 10 keppendurnir mættu innbyrðis. Teflt var með tímamörkin 4 mínútur með 2 sekúndna viðbót á hvern leik. Að loknum 9 umferðum tryggðu fjórir efstu keppendurnir sér sæti í undanúrslitum og úrslitum.

Vignir með yfirburði í undanmótinu

Vignir Vatnar Stefánsson var í sérflokki í undanmótinu. Hann lauk keppni með 8½ vinning af 9 mögulegum, án taps, og tryggði sér efsta sætið með mjög sannfærandi frammistöðu.

Næstur Vignir varð Björn Þorfinnsson með góða frammistöðu, fékk 6½ vinning. Næstu tveir til að tryggja síg í undanúrslit voru Örn Leó Jóhannsson og Jóhann Hjartarson en þeir gerðu stutt jafntefli innbyrðis í lokaumferðinni sem tryggði þá báða áfram og skildi sterka keppendur eftir með sárt ennið!

Hinn sívinsæli „Húnn“ tók bronsið

Efstu fjórir í undamótinu

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson — 8½/9
  2. IM Björn Þorfinnsson — 6½/9
  3. FM Örn Leó Jóhannsson — 5/9
  4. GM Jóhann Hjartarson — 5/9

Undanúrslit og úrslit

Eftir undamótið tók við úrslitakeppni með fjórum efstu keppendunum. Þar færðist spennan upp á nýtt stig, enda hvert einvígi afgerandi. Vignir Vatnar Stefánsson mætti Erni Leó Jóhannssyni en hann mátti velja sér andstæðing sem efsti maður mótsins. Í hinum undanúrslitaleiknum mættust þeir Jóhann Hjartarson og Björn Þorfinnsson í spennandi viðureign!

Vignir tryggði sér sæti í úrslitaleiknum með því að leggja Örn Leó 2,5-0,5 í þeirra einvígi. Einvígi þeirra Jóhanns og Björns varð stórskemmtilegt og spennandi með þvílíkum sveiflum. Jóhann vann fyrstu skákina og var gjörsamlega að pakka Birni saman í annarri skákinni. Staða Björns var það léleg að Hjövar Steinn Grétarsson í lýsingu mótsins var nálægt því að lenda í kæru fyrir ærumeiðandi ummæli um skákgetu Björns Þorfinnssonar.

Var staða Björn í raun það léleg að hjörvar lagði allt undir og lofaði að taka þátt í næsta CAD móti ef Björn sneri dæminu við. Björn gerði það og Hjörvar er með vídeó loforð um þátttöku í næsta móti!! Þriðja skákin endaði með jafntefli en Jóhann hafði að lokum betur eftir Armageddon skák og tryggði sig í úrslitaviðureignina.

Í úrslitum var Vignir of sterkur og lagði Jóhann að velli 2-0 eftir sannfærandi taflmennsku. Sigur í fyrstu skákinni gerði Vigni kleyft að tefla af öryggi með svörtu í skák númer tvö og að lokum sneri Vignir þeirri skák sér í hag!

Björn tók einvígið um þriðja sætið. Örn Leó átti gott mót og getur verið sáttur, hefur sýnt sína styrkleika í hraðskák á þessu móti og eins á Le Kock mótinu en í bæði skiptin endaði hann í 4. sætinu…framúrskarandi árangur en í bæði skiptin svekkjandi að ná ekki í verðlaunasæti. Það hlýtur að detta næst!

Lokaniðurstaða

  1. GM Vignir Vatnar Stefánsson — sigurvegari
  2. GM Jóhann Hjartarson — í öðru sæti
  3. IM Björn Þorfinnsson
  4. FM Örn Leó Jóhannsson

Glæsilega mótahald og umgjörð!

Green Diamond Invitational sýndi vel þann mikla styrk og breidd sem er að finna í íslenskri skák. Reyndir stórmeistarar, metnaðarfullir alþjóðlegir meistarar og sterkir yngri skákmenn mættust í hörðum hraðskákarbáttum þar sem allt gat gerst.

Keppnin var skipulögð af Chess After Dark (CAD) og var sýnd í beinni útsendingu á Visir.is og samfélagsmiðlum Chess After Dark. Þannig gátu skákáhugamenn fylgst með spennunni, hvort sem þeir voru á staðnum eða heima í stofu.

Aðalmótstyrktaraðili Green Diamond Invitational var Green Diamond. Jafnframt ber að þakka Kaldi léttöl, Dave & Jons og LENGJAN fyrir dýrmætan stuðning við mótið.

Framlag styrktaraðilanna gerði mögulegt að skapa metnaðarfullan og glæsilegan viðburð fyrir íslenska skák.

Framhald á veislunni?

Green Diamond Invitational 2026 lauk með verðskulduðum sigri Vignis Vatnars Stefánssonar, en mótið skildi einnig eftir sig fjölmargar spennandi skákir, óvæntar vendingar og skemmtileg augnablik. Sigurður Bragi Guðmundsson, forstóri Green Diamond er þegar spenntur fyrir að halda mótið 2027!

Sigurður Bragi leikur fyrsta leiknum fyrir Vigni Vatnar

Upptaka af útsendingu gærdagsins:

Mótsupplýsingar

Teflt var með tímamörkunum 4 mínútur á skákina auk 2 sekúndna viðbótar á hvern leik.

Keppendur (FIDE-stig)

GM Vignir Vatnar Stefánsson – 2534
GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Helgi Áss Grétarsson – 2420
GM Hannes Hlífar Stefánsson – 2419
GM Bragi Þorfinnsson – 2370
IM Björn Þorfinnsson – 2356
FM Magnús Örn Úlfarsson – 2351
IM Hilmir Freyr Heimisson – 2310
FM Örn Leó Jóhannsson – 2265

Keppendalistinn er, eins og sjá má, hlaðinn flestum af sterkustu skákmönnum þjóðarinnar.

Fyrirkomulag

Í fyrri hluta mótsins var tefld einföld umferð allir við alla, alls 9 umferðir. Pásur eftir 3. og  6. umferð.

Að riðlakeppni lokinni koumst fjórir efstu keppendurnir áfram í Final Four. Þar verða tefld undanúrslit, þar sem efsti maður riðilsins velur sér andstæðing af hinum þremur! Hvert einvígi verður þrjár skákir með sömu tímamörkum, 4+2. Sá keppandi sem endaði ofar í riðlinum fær hvítt í fyrstu tveimur skákunum.

Verði jafnt eftir þrjár skákir ræðst einvígið í Armageddon. Sigurvegarar undanúrslitanna mætast í úrslitum en taparar tefla um þriðja sætið.

Tímaplan keppenda

11:30 – Húsið opnar
12:00 – Útsending og mót hefst
12:00–12:50 – Umferðir 1–3
12:50-13:00 – Stutt 10 mín pása
13:00–14:00 – Umferðir 4–6
14:00 – 14:20 Stutt viðtal við þann sem leiðir mótið hér og svo 15 mín pása.
14:20 – 15:10 Umferðir 7-9
15:10 – 15:30 Viðtal við sigurvegara undankeppni – velur andstæðing í Final Four í útsendingunni
15:30 – 16:15 – Undanúrslit Final Four
16:15 – 16:30  – Stutt pása
16:30 – 17:00 – Úrslit og bronsleikur
17:00 – Viðtal við sigurvegara og verðlaunaafhending. Formlegri dagskrá lokið.

Áætlað er að hver umferð taki um 15 mínútur, að meðtöldum tíma fyrir uppsetningu og borðaskipti. Léttar veitingar verða í boði fyrir keppendur á mótsstað allan mótsdaginn.

Verðlaun

  1. sæti – 250.000 kr.
  2. sæti – 150.000 kr.
  3. sæti – 100.000 kr.

Styrktaraðilar eru auk Green Diamond Invitational: Kaldi léttöl, Lengjan, Dave&Jons

Þrír markaðir eru komnir á lengjuna:

Sigurvegari – Vignir er talinn líklegastur 1.65 en svo kemur Jóhann 4.42

Kemst í úrslit – Vignir er 1.18 hér, Jóhann um 2 og Helgi 3

kemst í undanúrslit – Vignir 1.03, Jóhann 1.2, Helgi 1.45

Birkir Karl Sigurðarson annar af forkólfum Chess After Dark, mótshöldurum hafði þetta að segja um mótið:

Hugmyndin að Green Diamond Invitational var einföld; að safna saman sterkustu skákmönnum landsins og búa til skemmtilegan viðburð sem bæði keppendur og áhorfendur geta haft gaman af.
Við erum sérstaklega ánægðir með styrkleika keppendalistans í ár, enda eru sjö stórmeistarar meðal þátttakenda og sjálfur Íslandsmeistarinn stigalægstur keppenda. Það segir sitt um gæði mótsins.
 
Við völdum einnig Final Four fyrirkomulagið þar sem það bætir spennu við keppnina og tryggir að allt geti gerst þegar kemur að úrslitunum. Markmiðið er að byggja upp árlegan skákviðburð sem skákáhugafólk, hlakkar til á hverju ári og við teljum að Green Diamond Invitational geti orðið fastur liður í íslensku skáklífi á komandi árum.
 
Þegar Íslandsmeistarinn er næst-stigalægstur keppenda þá veit maður að mótið er sterkt. Við erum gríðarlega ánægðir með þátttökuna og teljum að samspil stuttra tímamarka, Final Four fyrirkomulagsins og öflugasta keppendahóps landsins muni gera Green Diamond Invitational að einum skemmtilegasta skák viðburði ársins.
- Auglýsing -