Lenka tók sénsinn þegar hann gafst og náði fyrsta jafnteflinu á mótinu eftir erfiða byrjun

Átta íslenskir skákmenn sitja að tafli á Czech Open í Pardubice.

Mæðginin Jósef Omarsson (2064), Lenka Ptácníková (2063) og Adam Omarsson (2006) eru meðal 221 keppenda í a-flokki. Þau eru á milli 186-217 í stigaröð keppenda.

Sjötta umferð fór fram í a-flokki í gær. Lenka vann úkraíska FIDE-meistarann Dmytro Perets (2230). Þriðja sigurskákin í röð! Synirnir fylgjast að og gerðu báðir jafntefli.

Lenka hefur 3½ vinning en bræðurnir hafa ekki náð sér á strik og hafa 1½ vinning.

A-flokkur á Chess-Results

Í b-flokki (1500-2200) tefla Jón Úlfur Hafþórsson (1935) og Theódór Eiríksson (1845).

Jón Úlfur vann í gær en Theodór tapaði. Báðir hafa þeir 3 vinninga

B-flokkur á Chess-Results

Í c-flokki (u1800) teflir Eríkur Orri Guðmundsson (1539).

Eiríkur tapaði í gær og hefur 2½ vinning.

C-flokkur á Results

Í flokki 30+ tefla Sigurður Ingason (1783) og Óskar Haraldsson (1757).

Sigurður vann í gær en Óskar gerði jafntefli. Sigurður hefur 3 vinninga en Óskar hefur 2½ vinning.

U30+ á Chess-Results

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -