Stórmeistarinn Bragi Þorfinnsson bar sigur úr býtum á Árbæjarsafnsmótinu 2026 sem fram fór sunnudaginn 30. ágúst í hinu skemmtilega og sögulega umhverfi Árbæjarsafns. Bragi hlaut 6½ vinning af sjö mögulegum og hafði hálfs vinnings forskot á Róbert Lagerman, sem hafnaði í öðru sæti.
Mótið var haldið í samstarfi Taflfélags Reykjavíkur og Borgarsögusafns Reykjavíkur og var teflt í Kornhúsinu á Árbæjarsafni. Alls tóku 14 skákmenn þátt í mótinu.
Tefldar voru sjö umferðir í hraðskák með umhugsunartímanum 4 mínútur auk tveggja sekúndna viðbótartíma á hvern leik. Mótið var jafnframt reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Bragi Þorfinnsson, sem var stigahæsti keppandi mótsins, stóð undir nafni og lauk keppni með 6½ vinning. Róbert Lagerman, Árbæjarsafnsmeistari frá síðasta móti, veitti honum harða keppni og fékk 6 vinninga.
Baráttan um þriðja sætið vakti ekki síður athygli. Haldór Pálsson, sem var aðeins sjötti í styrkleikaröðinni með 1820 Elo-stig, átti mjög gott mót og tryggði sér þriðja sætið með 4½ vinning. Hann bætti jafnframt við sig rúmlega 21 stigi samkvæmt útreikningum mótsins.
Eiríkur K. Björnsson, Pétur Úlfar Ernisson og Ingi Hrafn Ýmisson komu næstir, allir með 4 vinninga. Ingi Hrafn átti sérstaklega gott mót miðað við styrkleikaröð og bætti við sig tæplega 33 stigum. Gunnar Þór Þórhallsson, sem varð áttundi með 3½ vinning, bætti mest allra við sig eða 46 stigum.
Efstu sæti:
- GM Bragi Þorfinnsson – 6½ v.
- FM Róbert Lagerman – 6 v.
- Haldór Pálsson – 4½ v.
- Eiríkur K. Björnsson – 4 v.
- Pétur Úlfar Ernisson – 4 v.
- Ingi Hrafn Ýmisson – 4 v.
Árbæjarsafnsmótið hefur skapað sér skemmtilega sérstöðu í mótahaldi Taflfélags Reykjavíkur enda fáir keppnisstaðir sem bjóða upp á jafn sérstakt umhverfi. Mótið er eitt þeirra móta sem TR heldur í samstarfi við Reykjavíkurborg og Borgarsögusafn Reykjavíkur.
Taflfélag Reykjavíkur þakkar Borgarsögusafni Reykjavíkur og starfsfólki Árbæjarsafns kærlega fyrir samstarfið og keppendum fyrir þátttökuna.
Lokastaða mótsins:
Chess-Results – Árbæjarsafnsmótið 2026
Myndasafn:
Flickr hjá Tómasi

















