100 ára afmælishátíð Taflfélags Vestmanneyja lauk í gær þegar Helgi Ólafsson vann afmælishraðskákmótið með fádæma yfirburðum. Áður hafði nafni hans Helgi Áss Grétarsson unnið atskákmótið á laugardeginum. Helgarnir góðir um helgar!

Áður en hraðskákmótið hófst, flutti Jóhanna Björg forseti SÍ stutt ávarp og færði Eyjamönnum gjöf í tilefni afmælisins!

Í kjölfarið var dregið um töfluröð á Íslandsmóti Skákfélaga en svo hófst taflmennskan!

Snemma móts vakti framganga ungs heimamanns, Arnars Boga Andersen, mesta athygli. Hann lagði þaulreynda meistara að velli, bæði Gauta Pál Jónsson og Stefán Steingrím Bergsson!

Þeir Helgi Ólafsson, Vignir Vatnar Stefánsson og Björn Þorfinnsson fóru vel af stað, unnu allir þrjár fyrstu skákir sínar. Vignir og Björn gerðu innbyrðis jafntefli í fjórðu umferð og þá strax var Helgi orðinn einn efstur að loknum fjórum umferðum með fullt hús eftir að hafa lagt Helga Áss að velli.

Miðkaflinn sem í hönd fór tryggði í raun sigurinn. Í næstu umferðum steig Helgi Ólafsson, nýkjörinn heiðursfélagi TV, á bensíngjöfina og lagði Björn og Vigni í næstu umferðum. Þá hafði Helgi mætt öllum sterkustu mönnum mótsins og hafði nú vinningsforskot á Ólaf B. Þórsson sem var allt í einu einn í öðru sæti vinningi á eftir. Þegar Helgi lagði hann að velli í sjöundu umferð var forskotið orðið 1,5 vinningur að loknum 7 umferðum og ljóst að aðeins stórslys kæmi í veg fyrir sigur stórmeistarans sterka með eyjablóðið!

Fór svo á endanum að aðeins Gauti Páll Jónsson náði að stela af Helga hálfum punkti með hraustlegri og skemmtilegri taflmennsku sem Helgi sjálur hafði gaman af rifjaði upp byrjunarleiki þeirrar skákar að loknu móti.

Lokastaða eftir 11 umferðir

Sæti Nafn Titill Elo Vinningar
1. Helgi Ólafsson GM 2404 10,5
2. Björn Þorfinnsson IM 2395 9
3. Vignir Vatnar Stefánsson GM 2613 9
4. Birkir Hallmundarson 1890 7
5. Örn Leó Jóhannsson FM 2372 7
6. Ólafur Þórsson 2187 6,5
7. Helgi Áss Grétarsson GM 2412 6,5
8. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir WCM 2047 6,5
9. Stefán Steingrímur Bergsson 2156 6,5
10. Gauti Páll Jónsson 2350 6

 


Helgi Ólafsson sigraði með miklum yfirburðum og hlaut 10½ vinning af 11 mögulegum. Björn Þorfinnsson og Vignir Vatnar Stefánsson komu næstir með 9 vinninga, en Björn hafnaði í öðru sæti á stigum úr oddastigaútreikningi.

Birkir Hallmundarson átti jafnframt afar sterkt mót og varð fjórði með 7 vinninga, jafn Erni Leó Jóhannssyni. Forsetinn, Jóhanna Björg, náði að leggja stórmeistarann Helga Áss að velli. Líklegast er eitthvað síðan ríkjandi forseti lagði stórmeistara að velli!

Mótahaldið gekk vel og bæði keppendur og heimamenn í Taflfélagi Vestmannaeyja gengu sáttir frá borði! Afmælismótið gekk vel, Íslandsmeistarar skákfélaga á afmælisárinu og félagsheimilið búið að fá andlitslyftingu!

- Auglýsing -