Skákdeild Breiðabliks hefur vetrarstarf sitt þriðjudaginn 1. september og samhliða fer nýtt skákstarf af stað í Kórnum á vegum HK.

Skákæfingar standa því til boða fyrir börn og unglinga í öllum hverfum Kópavogs í vetur og öll eru velkomin, byrjendur jafnt sem lengra komin.

Framundan er spennandi vetur, stútfullur af æfingum, mótum og viðburðum fyrir alla aldurshópa. Á bak við starfið stendur öflugt þjálfarateymi sem hlakkar til að taka á móti bæði nýjum og reyndum skákkrökkum.

Æfingar Breiðabliks fara fram í Stúkunni við Kópavogsvöll en æfingar HK í veislusalnum í Kórnum. Það gerir krökkum í Kórahverfinu loksins kleift að æfa skák í sínu hverfi, beint eftir skóla.

Æfingatafla Breiðabliks í Stúkunni við Kópavogsvöll

Yngri hópur

1.–3. bekkur, árg. 2018–2020

  • Mánudagar kl. 16:30–17:30
  • Laugardagar kl. 10:00–11:00
  • Þjálfari: Markús Orri
  • Skráning

Eldri hópur

4. bekkur og eldri, árg. 2014–2017

  • Þriðjudagar kl. 17:00–18:30 – Markús Orri
  • Fimmtudagar kl. 17:30–19:00 – Gunnar Erik
  • Föstudagar kl. 17:00–18:30 – Gunnar Erik og Þorsteinn Jakob
  • Skráning

Framhaldshópur

Lengra komin í 5.–10. bekk

  • Mánudagar kl. 17:30–19:00 – Gunnar Erik
  • Miðvikudagar kl. 17:30–19:00 – Þorsteinn Jakob
  • Föstudagar kl. 17:00–18:30 – sameiginleg æfing með eldri hópi
  • Skráning

8. bekkur og eldri

Árg. 2013 og eldri

  • Laugardagar kl. 11:00–12:30
  • Þjálfari: Gunnar Erik
  • Skráning

U20 / afrekshópur

20 ára og yngri, árg. 2007 og síðar

  • Mánudagar kl. 19:15–21:00
  • Miðvikudagar kl. 19:15–21:00
  • Þjálfari: Birkir Ísak
  • Skráning kemur fljótlega

Skákæfingar HK í veislusalnum í Kórnum

Yfirþjálfarinn Benedikt Briem sér um kennsluna í Kórnum og fyrstu tvær vikurnar verða fríar prufuæfingar.

Hópur 1

Börn fædd 2019–2020

  • Þriðjudagar kl. 14:00–15:00
  • Miðvikudagar kl. 14:00–15:00
  • Skráning

Hópur 2

Börn fædd 2014–2018

  • Miðvikudagar kl. 15:00–16:00
  • Föstudagar kl. 15:00–16:00
  • Skráning

„Við viljum að hvert einasta barn í Kópavogi sem langar að læra skák eigi æfingu í göngufæri. Metnaðurinn í vetur er einfaldur: engin æfing fellur niður og öllum líður vel við borðið,“ segir Benedikt Briem, yfirþjálfari skákdeildar Breiðabliks.

Engin reynsla er nauðsynleg og öll eru velkomin að kíkja á æfingu og prófa.

Einkunnarorð starfsins í vetur eru:

Vinátta · Gleði · Vinnusemi

- Auglýsing -