Eftir gott sumarfrí hefst vetrarstarf Ása skákklúbbs á ný þriðjudaginn 1. september kl. 13:00 að Stangarhyl 4. Mótin eru opin fyrir alla fædda 1966 og fyrr.
Teflt verður alla þriðjudaga kl. 13:00 til 17.00 fram til 1. júní 2027, að undanskildum hátíðisdögum sem lenda á þriðjudögum.
Við hlökkum til að taka aftur upp okkar skemmtilegu þriðjudaga þar sem skákin, félagsskapurinn og góða stemmningin ráða ríkjum.
Við hvetjum alla þátttakendur til að mæta sem oftast.
Það er nefnilega fólkið sem skapar stemmninguna, því fleiri sem mæta, því skemmtilegri verða skákdagarnir.
Jafnframt viljum við hvetja félaga okkar til að bjóða nýjum skákáhugamönnum með. Það væri gaman að stækka hópinn og fá ný andlit inn í okkar ágæta félagsskap.
Við viljum einnig minna á að æskilegt er að þátttakendur í vetrarstarfinu séu félagar í Félagi eldri borgara í Reykjavík, þar sem leiguverð húsnæðisins sem við notum grundvallast á félagsaðild.
Mætum vel, teflum vel og eigum saman góðar stundir við skákborðið!
Æsir skákklúbbur – skákin sameinar okkur.
Sjáumst þriðjudaginn 1. september kl. 13!
- Auglýsing -

















