Úrslitakeppni Íslandsmóts Símans í netskák 2026 hefst sunnudaginn 6. september og stendur yfir til 15. nóvember. Mótið, sem er skipulagt af Rafíþróttasambandi Íslands í samstarfi við Skáksamband Íslands og Sjónvarp Símans, fer fram á netinu í útsláttarfyrirkomulagi, þar sem 16 sterkir skákmenn etja kappi um titilinn Íslandsmeistari í netskák.
Taflmennska hefst kl. 15:00 á sunnudögum. Tefldar verða tvær viðureignir á hverju sinni
Viðureignir í 16 manna úrslitum
Dregið hefur verið um viðureignir í 16 manna úrslitum, sem fram fara á fjórum sunnudögum í september og október.
Viðureignirnar, raðaðar í dagsetningarröð, eru sem hér segir:
- 6. september: WGM Lenka Ptácníková – GM Jóhann Hjartarson
- 6. september: IM Hilmir Freyr Heimisson – FM Símon Þórhallsson
- 13. september: FM Jón Kristinn Þorgeirsson – FM Róbert Lagerman
- 13. september: GM Bragi Þorfinnsson – FM Oliver Aron Jóhannesson
- 27. september: IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson – FM Bárður Örn Birkisson
- 27. september: IM Björn Þorfinnsson – GM Helgi Áss Grétarsson
- 4. október: GM Vignir Vatnar Stefánsson – IM Dagur Ragnarsson
- 4. október: FM Sigurbjörn Björnsson – FM Ingvar Þór Jóhannesson
Á sunnudaginn, 6. september, mætast því Lenka Ptácníková, Íslandsmeistari kvenna og Jóhann Hjartarson, stigahæsti skákmaður Íslands frá upphafi, annars vegar og Hilmir Freyr Heimisson, Íslandsmeistari í skák, og Símon Þórhallsson, silfurhafi Íslandsmótsins í netskák 2025 hins vegar
Átta manna úrslit
Sigurvegarar tveggja viðureigna í sama flokki mætast í átta manna úrslitum:
- Lenka/Jóhann – Sigurbjörn/Ingvar
- Aleksandr/Bárður – Björn/Helgi Áss
- Jón Kristinn/Róbert – Vignir/Dagur
- Bragi/Oliver – Hilmir/Símon
Undanúrslit og úrslit
- Lenka/Jóhann – Sigurbjörn/Ingvar – Aleksandr/Bárður – Björn/Helgi Áss
- Jón Kristinn/Róbert – Vignir/Dagur – Bragi/Oliver – Hilmir/Símon
- 15. nóvember: Úrslit!
Dagskrá
Mótið fer fram á sunnudögum kl. 15 frá 6. september til 15. nóvember 2026, samkvæmt eftirfarandi dagskrá:
- 6. september 2026: Netskák – 16 manna úrslit
- 13. september 2026: Netskák – 16 manna úrslit
- 27. september 2026: Netskák – 16 manna úrslit
- 4. október 2026: Netskák – 16 manna úrslit
- 25. október 2026: Netskák – átta manna úrslit
- 1. nóvember 2026: Netskák – átta manna úrslit
- 8. nóvember 2026: Netskák – undanúrslit
- 15. nóvember 2026: Netskák – úrslit
Taflmennska hefst kl. 15:00. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Hægt er einnig að fylgjast með á YouTube- og Twitch-rásum RÍSÍ.
Verðlaun
Verðlaunafé mótsins er sem hér segir:
- 1. sæti: 125.000 kr.
- 2. sæti: 75.000 kr.
- 3. sæti: 25.000 kr.
- 4. sæti: 25.000 kr.


















