Snóker og Pool
Stórmeistarinn Vignir Vatnar í samstarf við Snóker&Pool í Lágmúla blæs til hraðskákmóts laugardaginn 5. september næstkomandi. Tefldar verða 9 umferðir með tímamörkunum 3+2 og mótið reiknað til hraðskákstiga. Mótið hefst klukkan 18:00 og S&P er í Lágmúla 5.

Framundan er Ólympíuskákmót í Úzbekistan og tilvalið að mæta og kveðja okkar stigahæsta skákmann. Góð tilboð á barnum og skákstemmning frameftir!

Frábær verðlaun í boði á mótinu! Efsti stigalausi, U-1700 og U-2000 ásamt hefðbundnum topp-3.
Aðeins er pláss fyrir 32 keppendur á mótinu – Þátttökugjald er 3.000 kr.
- Auglýsing -