Guðmundur Gíslason sigraði á Norðurlandsmótinu. Guðmundur Gíslason sigraði af nokkru öryggi á Norðurlandsmótinu sem haldið var í Miðgarði í Skagafirði um helgina. Guðmundur hlaut 8 ½ vinning af 9 mögulegum. Stefán Steingrímur Bergsson hlaut 9 vinninga og Jón Kristinn Þorgeirsson 8 ½ í þriðja sæti. Jón Kristinn varð Norðurlandsmeistari þar sem hann er sá eini þessara þriggja sem búsettur er norðan heiða.
Skagafjörður tók vel á móti skákmönnum um helgina og fór mótið fram við afar góðar aðstæður í menningarhúsinu Miðgarði.
Önnur úrslit má sjá hér. https://s2.chess-results.com/tnr1500077.aspx?lan=1&art=9&fed=ISL&turdet=YES&flag=30&snr=3&SNode=S0
- Auglýsing -














