Liðið í opnum flokki að tafli í 4. umferð

Sjötta umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand fór fram í gær og gekk ekki vel hjá íslensku liðunum. Í dag var frídagur í Samarkand en á honum sátu Úzbekar í efsta sæti eftir dramatískan sigur gegn Indverjum í sjöttu umferðinni.

Opinn flokkur: Andorra – Ísland

Ísland var stigahærra á öllum borðum og fyrirfram hefði mátt búast við sigri í þessari viðureign!

Borð Andorra stig Ísland stig
1 GM Óscar De La Riva Aguado 2428 GM Vignir Vatnar Stefánsson 2531
2 FM Serni Ribera Veganzones 2305 GM Jóhann Hjartarson 2461
3 FM Daniel Gómez Anadón 2193 GM Hannes Hlífar Stefánsson 2425
4 Esteve Mateu Guiu 2181 GM Guðmundur Kjartansson 2402
Hannes tapaði sinni skák með svörtu. Miðtaflið varð flókið og krefjandi og missti Hannes tökin í kringum 30. leik og hvítur fékk hættuleg færi gegn kóngi svarts.
Fljótlega jafnaði Guðmundur metin á 4. borði og staðan 1-1. Guðmundur tók yfir taflið í miðtaflinu með hvítu og vann skiptamun og hrundi svarta staðan mjög fljótt eftir það.
Jóhann virtist fá fínt tafl úr enska leiknum, missti af taktísku skot snemma samkvæmt tölvunum en erfitt þó að skilja línuna sem tölvan gefur. Eftir það vannst peð en svartur fékk mjög virka menn og vann peðið strax til baka. Jafnteflið varð nokkuð óuflýjanlegt fljótlega eftir það.
Vignir sat þá einn eftir en var að verja erfiða stöðu gegn reyndum stórmeistara. Staðan líklega töpuð á tímabili en Vignir náði í seiglujafntefli og tryggði þar með 2-2 jafntefli í viðureigninni.

Aðeins hægst á íslenska liðinu eftir sterka byrjun á mótinu en vonandi koma menn sterkir inn í seinni hálfleik mótsins eftir frídaginn. Næst á dagskrá er Suður-Kórea sem má ekki vanmeta en við eigum að vinna. Íslenska liðið hefur 7 stig.

Þungavigtarbardagi Úzbekistan og Indlands endaði með 2,5-1,5 sigri Úzbek eftir þrjú jafntefli og dramatískan sigur Yakoboev gegn Sarin á þriðja borði. Sarin hafði mun betra tafl en missti það niður í tap á augabragði og Yakoboev greip tækifærið fegins hendi. Þessi skák gæti talið mikið þegar talið verður úr kössunum í lokin!

37…Rf5?? leyfði 38.Re6!! og svo 39.gxh4 og vinnur svörtu drottninguna. Úzbekinn þurfti góða tækni í kjölfarið því litlu mátti muna að Sarin næði að setja upp virkismúr (e. fortress) og þá hefði skákin endað með jafntefli.

Úzbekar hafa einir fullt hús vinninga en þeir mæta næst Kínverjum sem hafa leyft eitt jafntefli á mótinu, eins og Armenar sem eru með þeim í 2-3. sæti. Armenar fá svo Bandaríkjamenn.

Kvennaflokkur: Ísland – Bosnía-Hersegóvína

Bosnía var stigahærra á öllum borðum. Hrund hvíldi.

Borð Ísland stig Bosnía-Hersegóvína stig
1 WGM Lenka Ptácníková 2082 WFM Milana Babić 2196
2 WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 1995 WFM Maša Babić 2147
3 WFM Guðrún Fanney Briem 1865 WFM Maša Maksimović 2087
4 WCM Iðunn Helgadóttir 1869 WFM Sara Jaćimović 2002

Viðureignin fór ekki vel af stað þegar Hallgerður missti snemma af svipaðri taktík og í umferðinni á undan. 12…Dd6?? leyfði 13.Dh5+ en 12…De7 og svarta staðan er fín og má segja að undirbúningur hefði þá gengið nokkuð vel upp. Aftur, ólíkt Hallgerði sem hefur yfirleitt verið mjög traust á þessum mótum og tapar ekki mörgum skákum.

Iðunn hafði líka svart á 4. borði og var búinn að gera eiginlega allt rétt og haði betra tafl lengst af í miðtaflinu. Aðeins vantaði upp á til að klára dæmið og því miður kom slæmur afleikur sem kostaði skákina.

Staðan hér 2-2 og ljóst að stefndi í tap þar sem endataflið á fyrsta borði var orðið steindautt jafntefli. Lenka hafði átt smá séns áður í endataflinu en engu að síður traust skák gegn mjög sterkri og efnilegri skákstelpu.

Þar með ljóst að viðureignin var töpuð. Guðrún náði ekki að klóra í bakkann. Miðtaflið sveiflaðist yfir til þeirrar bosnísku sem setti hvítu kóngsstöðuna í hálfgerða beyglu og hafði betra tafl eftir það og vann sanngjarnan sigur.

Aðeins og stórt tap og liðið á að gera betur gegn þessum þjóðum!

Liðið hefur áfram 6 stig í „hálfleik“ en Kazakar og Kínverjar hafa ennþá fullt hús í efsta sæti og mætast í næstu umferð. Íslenska liðið mætir Mozambique…enn einu sinni…í þriðja skiptið á Ólympíumótum, eins og Namibíu sem liðið mætti fyrr á þessu móti.

Ólympíu-tenglar!

- Auglýsing -