Ólympíuskákmótið í Samarkand er í fullum gangi og hefur að mestu gengið vel. Þegar fólk kom þangað í upphafi voru þó ýmis vandamál varðandi akstur frá fullvelli/lestarstöðvum og hótel. Herbergi ekki til og fólk mjög reitt. Ekkert nýtt að það séu vandamál í byrjun móts en það var óvenju mikið að þessu sinni. En þegar mótið hófst leystist flest.

Skákstaðurinn er glæsilegur. Helgi Ólafsson, liðsstjóri i í opnaflokki, sagði mér að þetta væri besti skákstaður sem hann hefði nokkurn tíma verið í. Sýningarsvæðið (Expo) er flott. Allt í allt er þetta mót mjög gott í samanburði við fyrri ár.

Vissulega komu upp ýmis vandræði við mótshaldið varðandi flutning í byrjun, en þau hafa minnkað og allt virkar nú vel. Ég læt aðra fjalla um keppnina sjálfa, en það sem margir vilja vita er spennandi kosningarnar um forseta FIDE.

Þrír frambjóðendur í forsetakjöri

Þrír frambjóðendur eru í kjöri: Timur Turlov, forseti Skáksambands Kasakstan og stofnandi Freedom Holding; Wadim Rosenstein, stofnandi WR Chess; og Jan Henric Buettner, þýskur frumkvöðull og meðstofnandi Freestyle Chess. Á listum þeirra standa einnig Viswanathan Anand, Gordon Tang og Malcolm Pein sem varaforsetaefni.

Rosenstein og Turlov hafa bása. Rosenstein hefur meira að segja tvo. Báðir hafa þeir vélmenni sem heilsa fólki. Buettner hefur sleppt þessu en er með svæði við aðalhótelið þar sem hann hittir fólk. Turlov hefur svo svæði fyrir utan við aðalathótelið þar sem fólk getur hist og spjallað. Allir leggja þeir umtalsverðar upphæðir í baráttuna. Sér í lagi Rosenstein og Turlov.  Buettner leggur mun minna fjárhagslega í dæmið.

Afar margir hér eru nokkuð vissir um að Turlov vinni þetta. Augnblikið sé með honum. Hann er með góða áru og minna ágengur á fólk en aðalkeppnauturinn sem getur verið mjög ágengur og krefjandi um svör.

Kosningarnar fara fram þann 26. september, þannig að þær eru eftir nokkra daga. Það gengur mikið á alls konar ásakanir á hvern annan, ásakanir um að menn noti tengsl til að stöðva vegabréfsáritanir annarra, kærur hingað og þangað. Ég hef ekki lagt mig fram að fylgjast of mikið þeim hluta. Vil að menn vinni frekar á skákborðinu – en auðvitað verða menn samt nota mannganginn.

Útspil Zurab Azmaiparashvili um að styðja Rosenstein var sannarlega olía á eld. Zurab var nýlega kjörinn forseti ECU og það var ekki síst vegna andstöðu hans við Rosenstein sem hann fékk mikinn stuðning. Það eru margir honum mjög reiðir – og allmargir sagt við mig – ég hefði átt að hlusta meira á þig en ég var á framboðslista sem bauð sig fram gegn Zurab.

Skák.is spáir því að Timur Turlov frá Kasakstan verði næsti forseti FIDE og vinni þegar sigur í fyrstu umferð. Hann hefur margt með sér – hefur byggt upp sterka skákhreyfingu í Kasakstan (yfir 100 starfsmenn) og fjárfest gríðarlega í skák ekki síst í skólaskák eins og t.d. nemendur í Hvaleyrar- og Vesturbæjarskóla þekkja. Hann hefur verið helsti styrktaraðili FIDE undanfarin ár. Eins og hann segir sjálfur. Mín dýrmætasta eign er mitt orðspor og ég legg það undir. Fyrirtæki hans er skráð á Nasdaq. Hann er fæddur í Rússlandi, flutti til Kaskastan 2011 og afturkallaði rússneska vegabréf sitt eftir innrás Rússa í Úkraínu árið 2022 og hefur meðal annars studd við Úkraínu eftir innrás Rússa. Hann  er gríðarlega áhugasamur um stuðning við opin skákmót, sem hann vill byggja upp, eins og Reykjavíkurskákmótið.

Turlov hefur það á móti sér að margir telja hann fulltrúa „gömlu valdaklíkurnar“ á meðan Rosenstein muni umbreyta hlutum.

Skák.is mun hafa puttann á púlsinum og fylgjast með skák og refskák!

- Auglýsing -