Taflfélag Reykjavíkur vann öruggan sigur á Íslandsmóti unglingasveita fram fór laugardaginn 7. desember í Garðaskóla í Garðabæ. Sveitin fékk þrem vinningum meira en helsti andstæðingurinn, Skákdeild Breiðabliks. Réðu þar mestu góður sigur á Blikum, 3-1, í annarri umferð. B-sveit Breiðabliks varð í þriðja sæti.
Sigursveit Íslandsmeistarara Taflfélags Reykjavíkur skipuðu:
- Batel Goitom Haile 4½ af 7
- Benedikt Þórisson 6½ af 7
- Kristján Dagur Jónsson 6 v. af 7
- Ingvar Wu Skarphéðinsson 7 v. af 7
Liðsstjóri var Daði Ómarsson
Lið a-sveitar Breiðabliks sipuðu

- Benedikt Briem 7 v. af 7
- Gunnar Erik Guðmundsson 5 v. af7
- Örn Alexandersson 4 v. af 7
- Óttar Örn Bergmann Sigfússon 5 v. af 7
Liðsstjóri var Birkir Karl Sigurðsson
Lið b-sveitar Breiðabliks skipuðu

- Ísak Orri Karlsson 3 v. af 7
- Tómas Möller 4½ af 7
- Þorsteinn Jakob F Þorsteinsson 6 v. af 7
- Guðrún Fanney Briem 4 v. af 7
Liðsstjóri var Birkir Karl Sigurðsson.
TR vann keppni c- og d-lið og Breiðablik vann keppni e-liða
Borðaverðlaun hlutu:

- Benedikt Briem, Breiðabliki, 7 v. af 7
- Benedikt Þórisson, TR-a, og Jón Louie Thoroddsen, TR-e 6½ af 7
- Kristján Dagur Jónsson, TR-a og, Þorsteinn F. Þorsteinsson, Breiðablik-b 6 v af 7
- Ingvar Wu Skarphéðinsson, TR-a 7
Borðaverðlaunar hafa geta valið á milli þess að fá frí þátttökugjöld á áskorendaflokk Íslandsmótsins í skák sem fram fer í Garðabæ í mars-apríl eða skákklukku (DGT2020). Auðveldast er fyrir borðaverðlaunahafa að hafa samband í tölvupósti í netfangið skaksamband@skaksamband.is.
Átján sveitir tóku þátt en aðeins frá fimm félögum. All mörg félög sem hafa unglingastarfsemi tóku ekki þátt. Vonandi að félög sjái ástæðu til að taka þátt í þessu skemmtilega móti að ári.
Mótshaldið var í öruggum höndum Taflfélags Garðabæjar nú sem endranær.
Umfjöllun um mótið, frá sjónarhóli TR, má finna á heimasíðu félagsins.













