Það er ekki á hverjum degi sem 2/3 þátttakenda á skákmóti ljúka keppni með verðlaunum eða happadrættisvinningi. Þetta gerðist þó á fjölmennu og skemmtilegu TORG skákmóti Fjölnis í Rimaskóla fyrsta dag febrúar mánaðar.

Á TORG skákmótinu var teflt í tveimur aðskildum flokkum, yngri og eldri. Tefldar voru sex umferðir og barist um hvern vinning sem skipti máli í hnífjafnri baráttu um sigra og veglega vinninga. Árni Ólafsson Hlíðaskólapiltur sigraði í efri flokki og var einn með 5 vinninga af sex. Árni kom taplaus úr mótinu, gerði tvö jafntefli. Í 2. – 4. sæti með 4,5 vinninga urðu þeir Adam Ómarsson Háteigsskóla, Kristján Dagur Jónsson Langholtsskóla og Ingvar Wu Skarpéðinsson Hlíðaskóla. Efst stúlkna varð Soffía Arndís Berndsen í Háteigsskóla með 4 vinninga.
Lokastöðuna í eldri flokki má finna á Chess-Results.

Í yngri flokki kom Einar Dagur Brynjarsson Breiðagerðisskóla fyrstur í mark með fullt hús vinninga. Glæsileg frammistaða á hnífjöfnu skákmóti. Í næstu sætum með 5 vinninga komu þeir Markús Orri Jóhannsson og Ólafur Fannar Pétursson. Þrettán stúlkur mættu til leiks í yngri flokki og urðu Rimaskólastúlkurnar og Íslandsmeistarararnir frá sl laugardag í 3. – 5. bekk, þær Emilía Embla B. Berglindardóttir, María Lena Óskarsdóttir og Nikola Klimaszewska efstar stúlknanna.
Lokastöðuna í yngri flokki má finna á Chess-Results.

Það var að venju margt spennandi og skemmtileg á TORG skákmótinu 2020, fríar veitingar frá Hagkaupum, Ekrunni og Emmess. Glæsilegir vinningar frá Hagkaup, Emmess, CoCO´s, Pizzan, Bókabúðinni og Blómabúðinni Grafarvogi
Skákstjórn var í höndum Helga Árnasonar formanns skákdeildar Fjölnis og Páls Sigurðssonar.
Þátttakendur voru 64, jöfn tala við reitina á skákborðinu, sem er skemmtileg tilviljun. Foreldrar fjölmenntu að venju og fylgdust af ánægju með sínum ungu „skákmeisturum“ og létu fara vel um sig í félagsmiðstöðinni á staðnum.












