Eldri skákmenn gerðu það ekki endasleppt og tileinkuðu SKÁKDAGI ÍSLANDS þremur mótum á jafnmörgum dögum, enda er „dagur“ ekki síður teyganlegt hugtak en orðið „strax“ að mati pólitíkusa. ÆSIR tileinkuðu mót sitt skákdeginum og afmæli Friðriks sl. þriðjudag, RIDDARAR á miðvikudag og loks KORPÚLFAR á fimmtudag með glæsilegu móti að Borgum i Grafarvogi.
Stefán Þormar vann fyrsta mótið með 8 v. af 10, Gunnar Gunnarsson hið annað með 8v af 9; og loks Sæbjörn Larsen Guðfinnsson það þriðja með 9.5 vinningi af 11 mögulegum. Það var í annað skipti sem hann vinnur FRIÐRIKSBIKARINN, vann fyrsta mótið fyrir 4 árum en Þór Valtýsson síða næstu tvö.
Margir þessara öldunga og skákgeggjara tefla í öllum klúbbunum þremur og eru því Ásar einn daginn, Riddarar þann næsta og Korpúlfar þann þriðja. Í þessum klúbbum tefla menn þó fyrst og fremst sér til hugarhægðar og yndisauka, en einnig fyrir fegurðina. Að jafnaði er þó telft af miklum krafti, og ekkert er gefið eftir hvorki í sókn né vörn, rétt eins og um meistaramót sé að ræða hverju sinni.
Þó keppendur, sem flestir eru á áttræðis og níræðisaldri, geti átt misjafna daga virðist „mannorðsáhætta“ ekki hamla þátttöku, enda þótt öll úrslit birtist umheiminum á heimasíðum klúbbana á netinu í mótslok.
Jafnt og þétt falla mætir félagar í þessum hópi í valinn í bókstaflegri merkingu sem mikil söknuður og sjónarsviftir er að, vel á þriðja tug á undanförnum 10 árum, en aðrir yngri hafa fyllt í hin stóru skörð. Þannig er lífsins saga. /ESE















