Íbygginn aldursforseti að tafli í Prag. Mynd: Heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2529), vann tékkneska stórmeistarann Jan Krejci (2559) í fimmtu umferð áskorendaflokks skákhátíðarinnar í gær. Hannes er efstur á mótinu með 4 vinninga.

Stöðuna má finna á Chess-Results.

Frídagur er í dag. Sjötta umferð fer fram á morgun. Þá mætir Hannes pólska stórmeistaranum Mateusz Bartel (2639). Í seinni hluta mótsins Hannes eingöngu við stórmeistara með meira en 2600 skákstig.

Í áskorendaflokknum tefla tíu keppendur og þar af átta stórmeistarar. Hannes er áttundi í stigaröð keppenda en meðalstigin eru 2586 skákstig. Þess má geta að Hannes er elstur keppenda á skákhátíðinni.

- Auglýsing -