Benedikt Þórisson 8.bekk Austurbæjarskóla

Veldisvöxtur er í þátttökunni í Skólanetskákmóti Íslands. Í síðustu viku voru 55 þátttakendur, en núna tóku 84 þátt.

Benedikt Þórisson 8.bekk Austurbæjarskóla vann í annað sinn á mótaröðinni, en annars hafa keppendur skipst á að vinna mótin. Enginn einn einokað þau, sem er skemmtilegt.

Þrír voru jafnir í mótslok með sex vinninga af sjö. Benedikt Þórisson 8.bekk Austurbæjarskóla, Batel Goitom Haile 7.bekk Hólabrekkuskóla og Matthías Björgvin Kjartansson 5.bekk Landakotsskóla. En sá fyrstnefni sigraði á oddastigum.

Úrslit mótsins: https://www.chess.com/tournament/live/skolanetskak—mars4-1168257

Efstu menn:

Nafn: Skóli: Bekkur: Notendanafn á chess.com : Vinningar Oddastig Stig til mótaraðar
1 Benedikt Þórisson Austurbæjarskóli 8.bekk bolti17 6 30.5 12
2 Batel Goitom Haile Hólabrekkuskóli 7.bekk BatelG 6 27.5 12
3 Matthías Björgvin Kjartansson Landakotsskóli 5.bekk MBK9 6 26.5 12
4 Gunnar Erik Guðmundsson Salaskóli 7.bekk GunnarErik 5.5 23.75 10
5 Benedikt Briem Hörðuvallaskóli 8.bekk benedikt2f 5.5 23.75 10
6 Lemuel Goitom Hólabrekkuskóli 1.bekk Lumi444 5 20.5 12
7 Jón Björn Margrétarson Hamraskóli 3.bekk JonBjorn 5 18 12
8 Aron Örn Hlynsson Rimaskóli 6.bekk X37A 5 17.5 12
9 Ingvar Wu Skarphéðinsson Hlíðaskóli 7.bekk IngvarWumazter 5 17.5 8
10 Gestur Andri Laugalækjarskóli 10.bekk Daserti 5 17 12
11 Idunn Helgadottir Landakotsskóli 7.bekk idunnhelgad 5 17 7
12 Sölvi Guðmundsson Hagaskóli 10.bekk Spengbub04 5 16.5 10

 

Teflt var í einum flokki, en sigurvegarar urðu þeir sem náðu bestum árangri í hverjum bekk.

Alls verða mótin sextán í vetur og þeir sem ná bestum árangri keppa um tvo ferðavinninga að verðmæti 50þús fyrir bestan árangur í mótaröðinni. Í þeim potti keppa allir saman. Fyrri ferðavinningurinn er fyrir bestan árangur í tólf bestu mótunum (dregið ef margir verða jafnir að stigum) og sá seinni fyrir bestan árangur í fimm bestu mótunum (dregið ef margir verða jafnir að stigum). Einungis er hægt að vinna einn ferðavinning.

Gefin eru mótaraðarstig í hverju móti þannig að efsti maður í hverjum bekk hlýtur 12 stig, annar maður 10, sá þriðji 8, fjórði 7 og svo áfram niður uns sá tíundi hlýtur 1 stig.

Næsta mót verður sunnudaginn 5.apríl kl 17:00.

Heimasíða Skólanetskákmóts Íslands 2019-20 er á: https://www.chess.com/club/skolanetskak

Staðan í mótaröðinni

- Auglýsing -