Skákdeild Hauka heldur mánaðarleg skákmót.
Núna á fimmtudaginn 22. október er næsta mót að Ásvöllum 1, veislusalnum.
Mótið hefst klukkan 19:45 og stendur til 21:45. Skráning fer fram á staðnum og byrjað er að taka við skráningum klukkan 19:30. Einnig má skrá sig fyrirfram í forminu hér að ofan.
Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 4+3. Fjórar mínútur á mann að viðbættum þremur sekúndum á hvern leik. Mótið er reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Mótið er öllum opið. Við hvetjum Hafnfirðinga sérstaklega til þátttöku!
Þátttökugjöld:
Félagsmenn Hauka 18 ára og eldri: 500kr.
Félagsmenn Hauka 17 ára og yngri: Ókeypis
Utanfélagsmenn 18 ára og eldri: 1000kr.
Utanfélagsmenn 17 ára og yngri: 500kr.
Reikningsnúmer: 0544 05 412544
Kennitala: 631101 2830
Úrslit janúarmóts Ágúst Sindri Karlsson vann
Úrslit febrúarmóts Gauti Páll Jónsson vann
Úrslit marsmóts Þorvarður Fannar Ólafsson vann
Úrslit aprílmóts Gauti Páll Jónsson vann
Úrslit maímóts Gauti Páll Jónsson vann



















