Skáksamband Evrópu (ECU) heldur Evrópumótið í netskák sem fram fer 16.-31. maí næstkomandi á Chess.com.
Mótið verður teflt í fimm mismunandi styrkleikaflokkum (miðað við atskákstig FIDE í apríl 2020).
- a) 1000 – 1400 – 16. og 17. maí
- b) 1401 – 1700 – 19. og 20. maí
- c) 1701 – 2000 – 22. og 23. maí
- d) 2001 – 2300 – 25. og 26. maí
- e) 2300+ – 29.-31. maí

Allir skákmenn sem hafa íslenskt FIDE-ID hafa rétt á þátttöku.Þeir sem ekki hafa en vilja taka þátt geta sótt um slíkt í netfangið skaksamband@skaksamband.is og geta þá teflt í a-flokki (ELO 1000-1400). Gefa þarf upp fullt nafn og kennitölu.
Skráning fer fram á vefsíðu ECU. Skráningarfrestur er þar til tveim dögum fyrir upphaf hvers styrkleikaflokk. Skráningarfrestur er t.d. til kl. 15, 14. maí fyrir fyrir A-flokkinn (1000-1400). Þátttökugjöld eru 5 evrur (um 800 kr.).
Eftir skráningu verða skákmennirnir meðlimir í ECU Online Central Club og viðeigandi styrkleikaflokki. Mæta þarf tímalega á Chess.com fyrir upphaf umferðar.
Teflt verður eftir svissneska kerfinu í öllum styrkleikaflokkum. Á degi 1 keppa allir sjö umferðir og a.m.k. 250 efstu komast í úrslitakeppni sem fram fer degi síðar. Þar eru tefldar átta umferðir. 100 efstu í úrslitakeppninni komast svo upp í næsta flokk.
Tímamörk í hverjum flokki verða 10+2.
Dagskráin
- 1000-1400 Undanrásir – 16. maí, kl. 15
- 1000-1400 Úrslit – 17. maí kl. 15
- 1401-1700 Undanrásir – 19. maí kl. 16
- 1401-1700 Úrslit – 20. maí kl. 16
- 1701-2000 Undanrásir – 22. maí kl. 16
- 1701-2000 Úrslit – 23. maí kl. 15
- 2001-2300 Undanrásir – 25. maí kl. 16
- 2001-2300 Úrslit – 26. maí kl. 16
- 2300+ Undanrásir – 29. maí kl. 16
- 2300+ Undanrásir – 30. maí kl. 15
- Úrslit 31. maí kl. 15 – 29.-31. maí
Í flokki skákmanna með 2300 verða tefldar tvennar undanrásir. Í úrslitakeppnina komast þeir 12 sem flesta vinninga fá samtals ásamt fjórum boðsgestum.
Verðlaun


















