Lundarnir frá Reykjavík, Reykjavik Puffins, enduðu í 3. sæti Nordic Online Chess League sem lauk á dögunum. Mótið var keppni sex liða frá Norðurlöndunum. Sænska liðið Malmö Vikings stóð fyrir mótinu.

Danska liðið Copenhagen Bulls sigraði á mótinu af talsverðu öryggi. Liðið tapaði bara einni viðureign, einmitt gegn Lundunum frá Reykjavík.

Fyrirkomulag mótsins var þannig að liðin sex tefldu öll viðureignir hvert við annað með tímamörkunum 10+5. Þar tefldu fjórir liðsmenn við alla liðsmenn andstæðinganna. Um mitt mót fór fram hraðskákmót og mótinu lauk svo með Chess960 móti. Lundarnir byrjuðu mótið af krafti með stórum sigrum gegn Færeyingum (14-2) og Finnum (11-5). Svo tóku við töp gegn Norðmönnum (6,5-9,5) og Svíum (5-11) en Lundarnir enduðu á góðum sigri gegn toppliði Dana (10-6).

Fyrir Lundana tefldu stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, Bragi Þorfinnsson og Helgi Áss Grétarsson, alþjóðlegu meistararnir Guðmundur Kjartansson, Davíð Kjartansson, Björn Þorfinnsson og Einar Hjalti Jensson, FIDE-meistararnir Vignir Vatnar Stefánsson og Ingvar Þór Jóhannesson ásamt Hlíðari Þór Hreinssyni.

Liði Lundanna var stýrt af FIDE-meisturunum Ingvari Þór Jóhannessyni og Birni Ívari Karlssyni.

Lokastaða mótsins:

Almenn ánægja var með mótið og var sýnt frá öllum viðureignum á Twitch, undir stjórn Svíans Drazen Dragizevic. Mótið var svar Svíanna við ástandinu í skákheiminum í mars. Framkvæmdin dróst þó töluvert og á hápunkti mótsins í júní voru flestir íslensku skákmennirnir komnir í sumarfrí – enda lífið á Íslandi farið að nálgast fyrra horf, með tilheyrandi sumarbústaðar- og golfferðum, sem setti strik í reikninginn á lokametrunum. Svíar stefna þó að því að mótið verði árlegt, með smávægjanlegum breytingum, sem er ánægjulegt.

- Auglýsing -