
Ísland sendir bæði lið í opinn flokk og í kvennaflokk á Ólympíuskákmótið í Batumi í Georgíu sem fram fer 24. september – 5. október.
Íslenska liðið í opnum flokki verður kynnt til leiks 21. júní nk. Kvennaliðið er hins vegar kynnt til leiks í dag á sjálfan kvennadaginn.
Björn Ívar Karlsson, landsliðþjálfari, er liðsstjóri og valdi liðið. Íslenska liðið í kvennaflokki á Ólympíuskákmótinu 2018 er svo skipað:
- WGM Lenka Ptácníková (2230) – hefur teflt á tólf ólympíuskákmótum
- WFM Guðlaug Þorsteinsdóttir (1983) – hefur teflt á sjö ólympíuskákmótum
- Nansý Davíðsdóttir (1945) – hefur aldrei teflt á ólympíuskákmóti
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1900) – hefur teflt á þremur ólympíuskákmótum
- Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (1721)´- hefur teflt á sex ólympíuskákmótum
Nansý er að tefla á sínu fyrsta Ólympíuskákmótin en allir hinar fjórar eru þrautreyndar landsliðskonur. Lenka er að tefla á sínu þrettánda Ólympíuskákmóti í röð. Guðlaug tefldi fyrst á Ólympíuskákmóti fyrir 40 árum síðan!
- Auglýsing -
















