Frá Chess 24.

Magnús Carlsen og Hikaru Nakamura létu ekki Ólympíumótið í netskák ekki trufla sig frá því tefla til úrslita á lokamóti mótasyrpu Magnúsar á Chess24. Mikið hefur gengið á og öll einvígin hafa verið spennandi. Bandaríkjamaðurinn vann fyrsta einvígið en Magnús kom til baka í einvígi í öðru einvíginu. Hikaru vann svo þriðja einvígið en tvö síðustu einvígin hafa farið í framlengingu.

Fjórða einvígið fer fram í dag. Sá vinnur sem fyrr vinnur fjögur einvígi. Carlsen þarf því að vinna fjögur næstu einvígi 3-1 til að tryggja sigur í syrpunni.

Nánar um gang mála í gær á Chess24.

Allt að sjö einvígi verða tefld í úrslitum (sá vinnur sem fyrr vinnur fjögur einvígi). Úrslitin fara fram 14.-20. ágúst.

Tefldar eru fjórar atskákir (15+10). Ef jafnt þá eru tefldar tvær hraðskákir (5+3). Ef enn jafnt þá er tefldur bráðabani (hvítur hefur fimm mínútur og en svartur fjórar) þar sem svörtum dugar jafntefli til sigurs.

- Auglýsing -