
Ásmundur Einar Daðason velferðarráðherra afhenti Helga Árnasyni formanni Skákdeildar Fjölnis 500.000 kr styrk úr Jafnréttissjóði Íslands við formlega athöfn á Hótel Borg á kvenréttindadeginum 19. júní. Verkefni skákdeildarinnar nefnist „Sterkar skákkonur“ og er ætlað að styðja enn frekar metnaðarfullt og fjölbreytt skákstarf stúlkna á aldrinum 6–26 ára innan Skákdeildar Fjölnis.
Skákdeildin hlaut þessa viðurkenningu líka í fyrra og nýtti þá styrkinn til að senda sjö efnilegar skákstúlkur á alþjóðlegt skákmót í Västerås í Svíþjóð.
Svo ánægjulega vildi til að þennan sama dag og úthlutunin fór fram, að tilkynnt var að hin 16 ára Nansý Davíðsdóttir hafi verið valin í íslenska kvennalandsliðið sem tekur þátt í Ólympíuskákmótinu í Batumi í Georgíu nú í haust. Nansý og skólasystur hennar í Rimaskóla hafa allt frá árinu 2003 unnið flesta Íslands-og Reykjavíkurmeistaratitla grunnskólasveita í gegnum árin og eru nú Íslandsmeistarar grunnskólasveita í elsta og yngsta flokki.

Skákdeild Fjölnis hyggst nýta hinn glæsilega styrk frá Jafnréttissjóði í að Fjölnisstúlkum upp á ókeypis skákbúðir yfir eina helgi og styrkja einstaka afreksstúlkur deildarinnar til þátttöku á skákmótum, jafnt innan lands sem utan.

















