Lokamót mótasyrpu Magnúsar Carlsen á Chess24 hefur verið æsispennandi. Hikaru Nakamura vann sigur á Magnúsi Carlsen í fimmta einvíginu eftir bráðabana. Félagarnir gerðu jafntefli í atskákunum fjórum. Þeir skiptust svo á sigur í framlengingunni og því kom til bráðabana og þar sem Nakamura hafði sigur. Staðan er 3-2 honum í vil og sá vinnur mótið sem fyrr vinnur fjögur einvígi. Carlsen þarf því nauðsynlega að vinna einvígið í dag til að tryggja úrslitaeinvígi.
Nánar um gang mála í gær á Chess24.
Allt að sjö einvígi verða tefld í úrslitum (sá vinnur sem fyrr vinnur fjögur einvígi). Úrslitin fara fram 14.-20. ágúst.
Tefldar eru fjórar atskákir (15+10). Ef jafnt þá eru tefldar tvær hraðskákir (5+3). Ef enn jafnt þá er tefldur bráðabani (hvítur hefur fimm mínútur og en svartur fjórar) þar sem svörtum dugar jafntefli til sigurs.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)

















