Í gær hófst alþjóðlegt at- og hraðskákmót í París. Tíu skákmenn, og þar með talið flestir sterkustu skákmenn heims, að undanskyldum heimsmeistaranum sjálfum, Magnúsi Carlsen, taka þátt. Mótið tekur fimm daga. Fyrstu þrjá dagana eru tefldar atskákir, einföld umferð, en hina tvo síðustu er tefld hraðskák, tvöföld umferð. Hver atskák gildir tvöfalt á hraðskákina.
Eftir þrjár umferðir eru Levon Aronian, Vishy Anand og Wesley So efstir með 4 stig (2 vinninga). Mótinu er framhaldið í dag og hefst taflmennskan kl. 10.
Nánar má lesa um atburðarrás gærdagsins og um mótið sjálft á Chess.com.

- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast ýmist kl. 10 eða 12)
- Auglýsing -

















