Aron Þór Maí er fjölda Íslendinga sem teflir í Prag. Mynd af heimasíðu TR

Aron Þór Mai (2033) stóð sig afar vel á alþjóðlegu móti í Sanxenxo á Spáni sem lauk í dag. Aron Þór hlaut 5½ vinning í 9 skákum og það þrátt fyrir að hafa teflt við stigahærri keppendur í sex skákum. Frammistaða hans samsvaraði 2168 skákstigum og hækkar hann um 69 stig fyrir hana. Vel að sér vikið!

Alexander Oliver (1958) átti ekki alveg jafn gott mót en hækkar engu að síður um 12 skákstig. Hann hlaut 4½ vinning eða 50% vinningshlutfall.

- Auglýsing -