Unglingameistari Íslands, Gauti Páll Jónsson (2074), vann ekki bara alþjóðlegan meistara á HSG-mótinu í Hollandi heldur lagði hann einnig FIDE-meistara að velli. Í fjórðu umferð, sem tefld var í gær, vann hann hollenska FIDE-meistarann Joris Kokje (2258).
Ekki gekk hins vegar vel í lokaumferðunum tveim í dag sem báðar töpuðust. Gauti hlaut 2,5 vinninga í skákunum sex en hækkar engu að síður um 24 skákstig.
Í viðtali við Skák.is eftir mótið sagði Gauti vera sáttur því þótt ekki hafi gengið vel í dag hafi hann teflt vel.
Hollenski stórmeistarinn og Íslandsvinurinn, Jorden van Foreest, sigraði á mótinu.
Meðfylgjandi eru sigurskák Gauta gegn ísraelska alþjóðlega meistaranum Yochanan Afek (2259)
Loading embedded chess game…
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (Follow Chess)
- Auglýsing -

















