Önnur umferð Haustmóts TR fór fram í gærkveldi. Stórmeistarinn, Hjörvar Steinn Grétarsson (2579) er efstur með fullt hús eftir sigur á Sigurði Daða Sigfússyni (2276). Bragi Þorfinnsson (2427) er annar með 1½ vinning. Staðan í flokknum er nokkuð óljós enda tvær skákir úr fyrstu umferð ókláraðar og verða ekki kláraðar fyrr en að lokinni 4. umferð.
A-flokkur

Úrslit 2. umferðar

B-flokkur

Lenka Ptácníková (2117) er efst í b-flokki með fullt hús. Þorvarður F. Ólafsson (2111), Pétur Pálmi Harðarson og Alexander Oliver Mai (2055) eru í 2.-4. sæti með 1½ vinning.
C-flokkur

Átta skákmenn eru efstir og jafnir með fullt hús í opnum flokki.
Þriðja umferð mótsins fer fram á föstudaginn og hefst kl. 19:30.
Nokkrar svipmyndir frá vettvangi.
- Auglýsing -


Chess-Results.





Heimasíða TR












