Haustmóti Taflfélags Reykjavíkur lauk í gærkveldi með spennandi umferð. Hjörvar Steinn Grétarsson vann a-flokkinn. Helgi Áss Grétarsson sem varð annar varð hins skákmeistari TR. Lenka Ptácníková vann b-flokkinn og Elvar Már Sigurðsson og Jóhann Jónsson urðu efstir og jafnir í opna flokknum.
A-flokkur

Hjörvar Steinn Grétarsson (2579) og Helgi Áss Grétarsson (2401) gerðu jafntefli í hreinni úrslitskák í lokaumferðinni. Skák sem Helgi þurfti nauðsynlega að vinna til að vinna mótið. Hjörvar hlaut 8 vinninga, Helgi Áss 7½ vinning og Guðmundur Kjartansson (2466), sem gerði jafntefli við Sigurð Daða Sigfússon (2276) varð þriðji með 7 vinninga.
Mótstaflan
Mestu hækkanir
Helgi Áss hækkaði um 25 stig, Sigurður Daði um 22 stig og Guðmundur um 11 stig
B-flokkur

Lenka Ptácníková (2117) vann b-flokkinn eftir að hafa unnið hreina úrslitaskák gegn Þorvarði F. Ólafssyni (2111). Lenka hlaut 6,5 vinninga. Þorvarður varð í 2.-3. sæti með 6 vinninga ásamt Alexander Oliver Mai (2055). Lenka fær keppnisrétt í a-flokki að ári.
Mótstaflan
Mestu hækkanir

Alexander hækkaði um 43 stig, Lenka um 15 stig og Gauti Páll Jónsson um 14 stig.
C-flokkur (opinn flokkur)

Elvar Már Sigurðsson (1712) og Jóhann Jónsson (0) urðu efstir og jafnir með 7,5 vinninga. Batel Goitom Haile (1587) varð í þriðja sæti með 7 vinninga.

Lokastaða efstu manna

Mestu hækkanir

Bjartur Þórisson hækkaði um 75 stig, Batel um 72 stig, Adam Omarsson um 42 stig. Eftirtaldir hækkuðu um 10 stig eða meira.
| Thorisson Bjartur | 75 |
| Haile Batel Goitom | 72 |
| Omarsson Adam | 42 |
| Briem Gudrun Fanney | 40 |
| Orrason Arnar Freyr | 34 |
| Heidarsson Mikael Bjarki | 28 |
| Moller Tomas | 26 |
| Omarsson Josef | 25 |
| Skarphedinsson Ingvar Wu | 24 |
| Thorisson Benedikt | 23 |
| Thorsteinsson Thorsteinn Jakob F | 22 |
| Stefansson Benedikt | 20 |
| Olafsson Arni | 19 |
| Kjartansson Matthias Bjorgvin | 18 |
| Sigurdsson Elvar Mar | 14 |
| Helgadottir Idunn | 10 |
Nokkrar svipmyndir frá vettvangi (Ríkharður Sveinsson)





















