Friðriksmót Landsbankans hefst kl. 13 á morgun – beinar útsendingar!

1475
0

Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák hefst kl. 13 á morgun. Teflt verður á Tornelo-netþjóninum. Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson verða með beinar lýsingar.

Dregið var um töfluröð kl. 17 í dag á Zoom. Þorsteinn Stefánsson, starfsmaður Landsbankans, dró um töfluröð með bingókúlum!

Röðun má finna á Chess-Results.

Beinar lýsingar (byrja rétt fyrir kl. 13:00)

Eftirtaldir tefla í úrslitakeppninni sem fram fer á laugardaginn kl. 13. Teflt er með tímamörkunum 3+2 og tefla allir við alla. Alls 15 umferðir.

  1. SM Hjörvar Steinn Grétarsson (2662)
  2. SM Héðinn Steingrímsson (2590)
  3. SM Hannes Hlífar Stefánsson (2532)
  4. SM Helgi Áss Grétarsson (2503)
  5. SM Jóhann Hjartarson (2502)
  6. AM Arnar Gunnarsson (2425)
  7. SM Þröstur Þórhallsson (2419)
  8. FM Vignir Vatnar Stefánsson (2404)
  9. AM Jón Viktor Gunnarsson (2402)
  10. AM Björn Þorfinnsson (2369)
  11. AM Guðmundur Kjartansson (2329)
  12. FM Jón Kristinn Þorgeirsson (2314)
  13. SM Bragi Þorfinnsson (2306)
  14. AM Davíð Kjartansson (2292)
  15. FM Guðmundur Gíslason (2278)
  16. Gunnar Freyr Rúnarsson (2102)

FIDE-meistarinn Andri Áss Grétarsson (2062) er varamaður komi til forfalla.

- Auglýsing -