Friðriksmót Landsbankans – Íslandsmótið í hraðskák hefst kl. 13 á morgun. Teflt verður á Tornelo-netþjóninum. Björn Ívar Karlsson og Ingvar Þór Jóhannesson verða með beinar lýsingar.
Dregið var um töfluröð kl. 17 í dag á Zoom. Þorsteinn Stefánsson, starfsmaður Landsbankans, dró um töfluröð með bingókúlum!
Röðun má finna á Chess-Results.
Beinar lýsingar (byrja rétt fyrir kl. 13:00)
Eftirtaldir tefla í úrslitakeppninni sem fram fer á laugardaginn kl. 13. Teflt er með tímamörkunum 3+2 og tefla allir við alla. Alls 15 umferðir.
- SM Hjörvar Steinn Grétarsson (2662)
- SM Héðinn Steingrímsson (2590)
- SM Hannes Hlífar Stefánsson (2532)
- SM Helgi Áss Grétarsson (2503)
- SM Jóhann Hjartarson (2502)
- AM Arnar Gunnarsson (2425)
- SM Þröstur Þórhallsson (2419)
- FM Vignir Vatnar Stefánsson (2404)
- AM Jón Viktor Gunnarsson (2402)
- AM Björn Þorfinnsson (2369)
- AM Guðmundur Kjartansson (2329)
- FM Jón Kristinn Þorgeirsson (2314)
- SM Bragi Þorfinnsson (2306)
- AM Davíð Kjartansson (2292)
- FM Guðmundur Gíslason (2278)
- Gunnar Freyr Rúnarsson (2102)
FIDE-meistarinn Andri Áss Grétarsson (2062) er varamaður komi til forfalla.
- Auglýsing -
















