Fidemeistarinn öflugi, Ásgeir Páll Ásbjörnsson, er genginn í Taflfélag Vestmannaeyja. Ásgeir er hvalreki fyrir félagið enda snjall skákmaður. Hann mun styrkja lið Vestmannaeyinga sem nú berst um að komast upp um deild á Íslandsmóti skákfélaga, úr 2. deild í 1. deild.

Ásgeir tilheyrir þeirri kynslóð ungra skákmanna sem stigu sín fyrstu skref á skákbrautinni eftir heimsmeistaraeinvígi allra tíma árið 1972. Í kjölfarið var hann talinn meðal efnilegustu skákmanna landsins. Nú þegar viskualdrinum er náð má ekki síður reikna með að hann láti finna fyrir sér á reitunum 64.

 

- Auglýsing -