Undanúrslitum Airthings Masters lauk í gær á Chess24. Svo fór að bæði Teimor Radjabov (2758) og Levon Aronian (2778) unnu sannfærandi sigra á andstæðingum sínum Daniil Dubov (2770) og MVL (2860). Það sannfærandi að aðeins þurfti til 2 og 3 skákir fyrir þá til að tryggja sér 2 vinninga sem dugði til vegna sigurs í fyrri einvíginu.

Án efa verður vel fylgst undir með einvíginu í heimalandi þeirra beggja enda eiga þjóðir þeirra Armenía og Aserb­aísjan í formlegu stríði sín á milli. Þetta er að ég held fyrsta viðureign skákmanna frá þessu landi síðan vopnahlé var gert í átökum um landsvæðið Nagorno-Karabakh í nóvember sl.

Dubov og MVL tefla um þriðja sætið.

Teflld eru tvö fjögurra skáka atskákeinvígi (15-10). Verði jafntefli verður teflt til þrautar með skemmri umhugsunartíma.

Sjá nánar á Chess24.

- Auglýsing -