EM einstaklinga sem verður hluti af Reykjavíkurskákmótshátíðinni í ár hefur verið fært frá apríl yfir til 22. maí – 2. júní.

Í næsta mánuði verður tekin ákvörðun um hvort raunhæft sé að halda mótið í vor. Verði það niðurstaða stjórna SÍ og ECU að svo sé ekki verður mótið flutt fram til ágúst/september og mun þess í stað gefa sæti á heimsbikarmótið 2023.

Fari EM ekki fram í vor í raunheimum verða undanrásir um sæti á heimsbikarmótinu haldin á netinu. Samkvæmt frétt FIDE í gær má gera ráð fyrir að þær undanrásir verði reiknaðar til stiga.

Sjá frétt ECU.

- Auglýsing -