Gauti Páll Jónsson (2081), Vignir Vatnar Stefánsson (2314) og Jóhann Arnar Finnsson (1736) eru efstir og jafnir með 3½ að lokinni fjórðu umferð Unglingameistaramót Íslands (u22) – Meistaramót Skákskóla Íslands. Jóhann Arnar og Gauti Páll gerðu jafntefli og Vignir gerði jafntefli við Símon Þórhallsson (2222)

Tvær umferðir fara fram í dag. Sú fyrri hófst kl. 11. Vignir teflir við Jóhann Arnar og Gauti mætir Ingvari Wu Skarphéðinssyni (1632).

Síðari umferð dagsins hefst kl. 17.

Teflt er við glæsilegar aðstæður  í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6. Um að leið og keppnisstaður er gefinn upp er rétt að taka fram að vegna sóttvarnareglna eru áhorfendur ekki velkomnir á skákstað – en það væsir ekki keppendur!

- Auglýsing -