Í gærkvöldi, fimmtudag var tefld sjötta umferð í A-flokki. Þar urðu úrslit sem hér segir:
- Andri-Gunnlaugur 1-0
- Karl-Eymundur 0-1
- Sigurður-Stefán
- Skák Rúnars og Hjörleifs var frestað vegna veikinda Hjörleifs.
Rúnar er sem fyrr með fullt hús vinninga. Andri er með sömu vinningatölu en hefur teflt einni skák meira.
Í lokaumferðinni á sunnudag eigast þessir við:
- Gunnlaugur-Rúnar
- Eymundur-Andri
- Stefán-Karl
- Hjörleifur-Sigurður
B-flokkur:
Í B-flokki var tefld áttunda umferð og fór svo:
- Markús-Sigþór 1-0
- Tobias-Emil 1-0
- Jökull Máni-Brimir 0-1
- Mikael-Jóhann 0-1
- Gunnar Logi-Alexía 1-0
Þeir Markús og Tobias berjast enn sem fyrr um sigurinn í B-flokki; hafa gert jafntefli sín á milli en unnið aðrar skákir. Aðrir eiga ekki möguleika á sigri í B-flokki. Þeir félagar berjast líka um Akureyrarmeistaratitilinn í unglingaflokki (f. 2009-2005). Mikael er sem stendur í þriðja sæti með 5 vinninga. Þeir Jökull Máni og Sigþór berjast svo um sigurinn í barnaflokki (f.2010 og síðar), en þeir mætast einmitt í lokaumferðinni á sunnudag. Þá tefla einnig saman Markús og Jóhann, Brimir og Gunnar, Emil og Mikael og Alexía og Tobias.
Lokaumferðin hefst sumsé á sunnudag kl. 13.00
















