Baadur Jobava fékk tækifæri til að tefla við Alexander Oliver Mai í dag. Mynd: Oliver Mai.

Í dag hófst Xtracon Chess Open (áður Politiken Cup) við Helsingjaeyri í Danmörk. Átta íslenskir skákmenn taka þátt í mótinu.

Það eru Jóhann Hjartarson (2523), Hilmir Freyr Heimisson (2241), Örn Leó Jóhannsson (2196), Jóhann Ingvason (2189), Aron Þór Mai (2119), Alexander Oliver Mai (1966), Hafsteinn Ágústsson (1844) og Ólafur Gísli Jónsson (1844). Beinar útendinar frá fyrstu umferð hefjast núna kl. 12:15.

Alexander Oliver fær það skemmtilega verkefni að mæta Baadur Jobava (2644).  Jóhann Hjartarson teflir við Sigurd Justinussen (1921).

Hægt er að fylgjast með Alexander og Jóhanni í beinni.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2536) keppir á opna tékkneska mótinu (Czech Open) í Pardubice. Mótið hófst í gær og gerði Hannes jafntefli við Slóvenann Domen Hiti (2259) í fyrstu umferð.. Önnur umferð fer fram í dag. Hannes verður í beinni gegn Tékkanum Vit Kratochvil (2233). Umferðir í Pardubice hefjast ávallt kl. 13.

FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2277) er meðal þátttakenda á alþjóðlegu móti á Krít. Vignir hefur 2½ vinning eftir fjórar umferðir.  Fimmta umferð fer fram í dag.

Þess fyrir utan hefst ofurmót í Biel á morgun þar sem Magnus Carlsen er meðal þátttakenda.

- Auglýsing -