Stórmeistarinn, Jóhann Hjartarson (2523), er meðal 30 skákmanna sem hafa fullt hús eftir 3 umferðir á Xtracon-mótinu við Helsingjaeyri í Danaveldi. Í gær, voru tefldar tvær umferðir. Fórnarlömb Jóhanns voru annars vegar Daninn Nicolai Kistrup (2154) og hins vegar þýski FIDE-meistarinn Bernd Baum (2280). Í dag mætir hann indverska alþjóðlega meistaranum Kauanduur Srihari Raghunandan (2417).
Hilmir Freyr Heimisson (2241), Örn Leó Jóhannsson (2196) og Aron Þór Mai (2119) hafa 2 vinninga. Alexander Oliver Mai (1966) mætti í gær Jan Timman (2555) og hefur á mótinu teflt bæði við Jobava og Timman!
Hinn hálfíslenski Baldur Teodór Petersson (2153) gerði jafntefli við stórmeistarann Jonny Hector (2499) í 2. umferð
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (Hefjast kl. 11:15)
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2536) vann Indverjann Karayanan Kartchick (1919) í 3. umferð á opna tékkneska mótinu í Pardubice. Hannes hefur 1½ vinning.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
FIDE-meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2277) vann Grikkjann Konstantinos Emmanouilidis (1982) í sjöttu umferð á alþjóðlegu móti á Krít og hefur 4 vinninga.















