Úrslitaeinvígi Jóhönnu Bjargar Jóhannsdóttur og Lenku Ptácníková hefst kl. 15 í dag. Í úrslitaeinvíginu er notast við sama fyrirkomulag og í Íslandsbikarnum og á Heimsbikarmótinu í Sochi. Teflt verður í húsnæði TR, Faxafeni 12, og eru áhorfendur velkomnir á skákstað.
Verður Jóhanna Íslandsmeistari í fyrsta skipti eða Lenka í það þrettánda?
Fyrirkomulag
- Tefldar eru tvær atskákir, 25+10
- Ef jafnt verða tefldar tvær atskákir, 10+10
- Ef enn jafnt, verða tefldar tvær hraðskákir, 5+3
- Ef enn jafnt, þá tefld bráðabanaskák þar sem hvítur fær 5 mínútur á móti 4 mínútum svarts. Tvær sekúndur í viðbótartíma eftir 60 leiki. Svörtum dugar jafntefli til sigurs.
Dregið verður um liti fyrir hvert 2ja skáka einvígi.
Hvernig er best að fylgjast með?
- Auglýsing -















