Ný alþjóðleg skákstig, sem taka gildi á morgun, 1. júlí, eru komin út. 393 íslenskir skákmenn teljast virkir. Hjörvar Steinn Grétarsson (2603) er langstigahæstur íslenskra skákmanna. Mikael Bjarki Heiðarsson (+67) hækkar mest frá júní-listanum.
Topp 20
Litlar sveifur á toppnum. Hjörvar Steinn Grétarsson (2603) er langstigahæsti skákmaður þjóðarinnar. Héðinn Steingrímsson og Jóhann Hjartarson (2519) koma næstir.

Mestu hækkanir
Mikael Bjarki Heiðarsson (+67) hækkar mest frá júní-listanum. Í næstu sætum eru Gunnar Erik Guðmundsson (+45) og Adam Omarsson (+43).

Stigahæstu ungmenni landsins (u20)
Alþjóðlegi meistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2361) er stigahæsta ungmenni landsins. Í næstu sætum eru Hilmir Freyr Heimisson (2317) og Aron Þór Maí (2110).

Stigahæstu skákkonur landsins
Lenka Ptácníková (2109) er stigahæsta kona landsins. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (2019) er orðin næststigahæsta skákkona landsins eftir miklar hækkanir undanfarið. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (2009) er þriðja í stigaröðinni.

Reiknuð skákmót

Heimslistinn












