Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2517), hefur gert jafntefli í öllum þremur skákum sínum á alþjóðlega móti í Budejovice í Tékklandi. Í annari umferð gerði hann jafntefli við austurríska alþjóðlega meistarann Dominik Horvath (2447) og í þriðju við tékkneska stórmeistarann Vlastimil Babula (2563). Hann teflir við þýska FIDE-meistarann Collin Colbow (2353) í fjórðu umferð dag.
Hannes teflir í lokuðum 10 manna flokki. Meðalstigin er 2440 skákstig og er Hannes þriðji í stigaröð keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14)
- Chess-Results
- Auglýsing -
















